Á morgun, laugardag verður bikar­veisla í Íþróttamiðstöðinni þegar karla- og kvennalið spila í 16 liða úrslitum. Og það sem meira er, bæði liðin taka á móti Fram en karla- og kvennalið Safamýrar­liðsins spila í úrvalsdeild á meðan lið ÍBV eru deild neðar. Það verður því fróðlegt að sjá hvar lið ÍBV standa gagnvart úrvals­­deild­ar­liðunum.