Hinn ungi og efnilegi Kjartan Guðjónsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við félagið. Kjartan var lykilmaður 2. flokks félagsins sem hélt sæti sínu í B-riðli Íslandsmótsins í sumar en Kjartan getur spilað flestar stöður á vellinum. Eyjamenn eru nú byrjaðir að safna vopnum fyrir spennandi tímabil næsta sumar en samkvæmt heimildum Eyjafrétta verður nýr leikmaður ÍBV kynntur til leiks síðdegis í dag.