Kvennalið ÍBV tók á móti Fram í Eimskipsbikarnum í dag en langt er síðan að ÍBV tók þátt í bikarkeppninni. Segja má að eyjastúlkur hafa aldrei séð til sólar í leiknum og komst Fram í 0-5 strax í upphafi leiks. Eyjastúlkur náðu þó að hífa upp um sig brækurnar undir lok fyrri hálfleiks og léku ágætlega þó svo að sigur hafi aldrei verið í sjónmáli. Leikurinn endaði svo með 22 marka sigri Framara 18-40