Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði bæði mörk Reading þegar varalið félagsins sigraði Bristol Rovers 2-1 í æfingaleik í dag. Gunnar Heiðar, sem er samningsbundinn danska úrvalsdeildarliðinu Esbjerg, hefur verið á reynslu hjá Reading síðan á mánudag í síðustu viku og mun það væntanlega ráðast í kjölfar leiksins í dag hvort hann gangi til liðs við Reading á láni.