Paul Hart hefur verið sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth, þar sem Hermann Hreiðarsson spilar. Portsmouth er í neðsta sæti deildarinnar og hefur ekki náð sér á strik á leiktíðinni. Talið er líklegt að Ísraelsmaðurinn Avram Grant taki við af Hart sem stjóri Portsmouth, en Grant stýrði liði Chelsea frá 2007 til 2008.