Eyjapeyinn Hermann Hreiðarsson sýndi hversu mikilvægur hann er enska úrvalsdeildarliðinu Portsmouth þegar liðið vann Burnley fyrr í dag. Hermann fór fyrir sínum mönnum, byrjaði á því að fiska vítaspyrnu sem reyndar nýttist ekki en bætti svo um betur með því að skora fyrra mark af tveimur í 2:0 sigri Portsmouth. Mark Hermanns var sérlega glæsilegt, þrumuskot úr þröngu færi eftir laglegan undirbúning félaga hans og fékk Hermann mikið lof frá lýsendum á ensku sjónvarpsstöðinni Sky Sports.