Þann 10 desember, eða næstkomandi fimmtudag, verða frábærir jólatónleikar haldnir í Höllinni. Nokkrir af bestu söngvurum landsins mæta ásamt sveit Eyjamanna. Stærstu stjörnurnar eru án efa systkynin Páll Óskar og Diddú en undri spilar Monica. Þá mun Helga Möller einnig taka lagið, Litlu Lærisveinarnir undir stjórn Védísar Guðmundsdóttur ásamt frábæru bandi sem þeir Biggi Niels, Sæþór Vídó, Viktor rakari og Þórir Ólafs skipa.