Nú er sá árstími þegar jólahlaðborðin eru haldin á veitingastöðum bæjarins. Hlaðborðin eiga það öll sameiginlegt að vera glæsileg og borðin svigna undan kræsingunum. Í gær var haldið óvenjulegasta jólahlaðborð ársins þegar Einsi Kaldi, bauð félögum sínum upp á jólamat eftir hádegisæfingu Lunch United, og það í karlaklefa íþróttamiðstöðvarinnar.