Vinnslustöð Vestmannaeyja ætlar að greiða hverjum starfsmanni 150.000 krónur til viðbótar við desemberuppbót nú fyrir jólin. Þá verður jólabónusinn tvöfaldaður hjá Ísfélagi Vestmannaeyja vegna góðrar afkomu á árinu. Þessi tvö stærstu fiskvinnslufyrirtæki Vestmannaeyja munu því greiða starfsmönnum í landvinnslu um tuttugu milljónir króna aukalega fyrir þessi jól. Afkoma fyritækjanna hefur verið góð á árinu vegna veikrar stöðu krónunnar.