Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék í gær æfingaleik gegn nýliðum úrvalsdeildarinnar næsta sumar, Hafnarfjarðarliðinu Haukum. Leikurinn fór fram í Kórnum en nýliðarnir höfðu að lokum betur 3:2 eftir að hafa komist í 2:0. Andri Ólafsson og Arnór Eyvar Ólafsson jöfnuðu hins vegar metin áður en Haukar skoruðu sigurmarkið.