Hermann Hreiðarsson, varnarmaður Portsmouth, fékk að líta gula spjaldið fyrir furðulegar sakir í 1-1 jafnteflinu gegn Sunderland í dag. Steve Bennett dómari leiksins sýndi Hermanni gula spjaldið um leið og hann gekk inn á völlinn þegar að síðari hálfleikur var að fara að hefjast.