Nú liggur fyrir riðlaskipting Deildarbikarkeppninnar sem hefst á nýju ári. Þrjú Eyjalið taka þátt í keppninni, karlalið ÍBV og KFS og kvennalið ÍBV. Karlalið ÍBV leikur í efstu deild, sem er skipt í þrjá riðla. ÍBV leikur í 3. riðli sem er nokkuð sterkur á að líta, eins og reyndar riðlarnir allir eru. KFS leikur í B-deild og kvennalið ÍBV í B-riðli. Riðlaskiptinguna má sjá hér að neðan.