Niels Erik Söndergaard, yfirmaður íþróttamála hjá Esbjerg, segir í samtali við danska fjölmiðla að gengið verði frá lánsskiptum Gunnars Heiðars Þorvaldssonar til Reading í dag. Lánssamningurinn mun gilda til loka tímabilsins og mun Reading hafa forkaupsrétt á leikmanninum standi hann undir væntingum.