Hermann Hreiðarsson og félagar hans í Portsmouth eiga erfitt verkefni fyrir höndum í kvöld en botnlið ensku úrvalsdeildarinnar heimsækir topplið Chelsea á Stamford Bridge. Hermann hefur einu sinni fagnað sigri á Stamford, þá með liði Charlton, en Portsmouth hefur aldrei náð að vinna sigur á Brúnni.