Þrír Eyjamenn eru í 28 manna landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, þeir Birkir Ívar Guðmundsson, Kári Kristján Kristjánsson og Gunnar Berg Viktorsson. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari þurfti að tilkynna 28 manna hóp til mótshalda Evrópumótsins í Austurríki. Hópurinn verður svo skorinn niður og mun að líkindum enda í 16 manna hópi. Evrópumótið fer svo fram dagana 19. til 31. janúar.