Hin árlega jólasýning Fimleika­félagsins Ránar var haldin síðasta laug­ar­dag í íþróttamiðstöð­inni. Jólasýningin hefur fyrir löngu skapað sér fastan sess í undirbúningi jólanna, sérstaklega hjá þeim fjölskyldum sem eiga börn sem iðka hina göfugu íþrótt sem fimleikarnir eru. Sýningin í ár var bráðskemmtileg, krakk­arnir sýndu skemmtilega takta og fimleika­félagið á mikinn efnivið fyrir komandi ár. Hægt er að sjá fjölda mynda frá sýningunni hér að neðan.