Kvennalið ÍBV lék í síðustu viku tvo æfingleiki á fastalandinu auk þess að æfa einu sinni. Á miðvikudagskvöld léku stelpurnar gegn Keflvík í Reykjaneshöllinni og unnu 4:2. Daginn eftir var æft í Kórnum í Kópavogi og svo spilað gegn ÍR á sama stað síðdegis. ÍBV hafði betur, 3:1.