Laugardaginn 02. janúar kl. 13.15

Styrktartónleikar í dag klukkan 17.00

Styrktartónleikar í dag klukkan 17.00 Stuðbandið Tríkot mun leika á tónleikunum
Í dag klukkan 17.00 verða haldnir styrktartónleikar í Týsheimilinu þar sem flestir af bestu tónlistamönnum Eyjunnar mun leika fyrir gesti.  Um er að ræða styrktartónleika fyrir Krabbavörn í Vestmannaeyjum en allir sem koma að tónleikunum, gefa sína vinnu.  Áætlað er að tónleikarnir standi yfir í um tvær klukkustundir en aðgangseyrir er aðeins 1.500 krónur.

Meðal þeirra tónlistarmanna sem munu stíga á svið eru Tríkot, Obbosí, Silja Elsabet, Arndís Ósk og Sæþór Vídó.
 
"Við viljum bara byrja árið vel og gefa eitthvað til góðra mála.  Við sameinumst öll í að gera eitthvað gott og allir gefa sína vinnu.  Við vonumst til að Eyjamenn láti ekki sitt eftir liggja og fjölmenni á tónleikana," sagði Hörður Þór Harðarson, eigandi tækjaleigunnar H-hljóðs ehf en Hörður hafði frumkvæðið að tónleikunum.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi