Engar upplýsingar liggja fyrir varðandi ferðaáætlun í Landeyjahöfn sem áætlað er að opna 1. júlí næstkomandi eða eftir aðeins tæpa sex mánuði. Ekki er hægt að bóka ferðir með farþegaferjunni Herjólfi eftir 1. júlí 2010, sem þýðir að hvorki er hægt að taka við bókunum á Goslokahátíð og Þjóðhátíð. Til að opna fyrir þann möguleika leggur bæjarráð til að bókað verði miðað við áætlun 2009 og að þær bókanir flytjist svo yfir á nýja áætlun þegar hún liggur fyrir.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Þriðjudaginn 12. janúar kl. 16.48
Seinagangur við skipulagningu Landeyjahafnar:
Tugmilljóna tjón fyrir ferðaþjónustuna í Eyjum
Bæjarráð vill að bókað verði samkvæmt áætlun 2009
Þegar aðeins tæpir sex mánuðir eru þangað til að Landeyjahöfn verði tekin í gagnið, er ekki enn hægt að bóka ferð eftir 1. júlí.„Bæjarráð harmar að enn liggi ekki fyrir upplýsingar um ferðaáætlun og gjaldskrá Herjólfs eftir að hann fer að sigla í Landeyjahöfn. Á sama hátt er ekki hægt að bóka í ferðir Herjólfs eftir 1. júlí 2010 og þar með hvorki á Þjóðhátíð né Goslokahátíð. Fyrir all nokkru hófu ferðaskrifstofur að undirbúa ferðasumarið 2010. Vestmannaeyjar hafa vaxandi aðdráttaafl fyrir innlenda sem erlenda ferðamenn og ríkur vilji í Vestmannaeyjum til að þróa þjónustu sína áfram. Á meðan ekki liggja fyrir upplýsingar getur enginn slíkur undirbúningur átt sér stað. Upplýsingaleysið veldur Vestmannaeyjum tugmilljóna tjóni,“ segir í fundargerð bæjarráðs.








