Enn og aftur komum við að því að menn á ríkisjötunni eru með puttana og hugann annars staðar en hann á að vera. Það er náttúrulega með hreinum ólíkindum að ekki skuli búið að gefa út neitt varðandi ferðatíðni á þessum siglingum. Auðvitað byrjar sumarið á því að gamla siglingaleiðin verur en í notkun en það er ekki seinna vænna að fara að a´kveða og gefa út hvernig menn ætla að hafa framhaldið. Drög að þessu ættu nú þegar að liggja fyrir og vera til umræðu, ekki bara hér í Eyjum heldur líka hjá sveitunum í kringum höfnina því áhrif þessarar hafnar munu að sjálfsögðu koma líka í ljós þar, hvað varðar alla þætti ferðamennskunnar.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 13. janúar kl. 08.17
Gísli Hjartarson bloggar:
Megn óánægja
EN við Eyjamenn megum ekki bara tuða yfir þessu við þurfum að koma okkur í gírinn og gera okkur klár í ferðamannaharkið næsta sumar. Þar þurfurm við væntanlega að taka okkur tak á ýmsum sviðum, heyri miklar vangaveltur varðandi tjaldstæðin t.d.. Við megum ekki bara tuða við þurfum líka að vera klár þegar sumarið kemur, ekki bara þegar breytt siglingaleið opnast.
Tengd frétt:
Tugmilljóna tjón fyrir ferðaþjónustuna í Eyjum
Tugmilljóna tjón fyrir ferðaþjónustuna í Eyjum









