Í morgun hélt bæjarstjórn Vestmannaeyja fund sem frestað var í gærkvöldi. Frestunin kom til vegna skrifa Kristjáns L. Möllers, samgöngu- og sveitastjórnaráðherra en bréfið birtist hér á Eyjafréttum.is í gær. Meirihluti bæjarstjórnar Vestmannaeyja lagði fram ályktun þar sem lýst er undrun á framkomu ráðherra og að hann skuli með þeim hætti setja helstu hagsmuni Vestmannaeyja í farveg vantrausts og flokkspólitískra hagsmuna. Við afgreiðslu ályktunarinnar sat minnihlutinn hjá og harmaði í bókun að umræður um samgöngumál væru komin á þetta stig. Talsverðar umræður spunnust eftir það en ályktun meirihlutans og bókun minnihlutans má lesa hér að neðan.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Föstudaginn 15. janúar kl. 12.04
Fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja:
Bæjarstjórn ósammála í afstöðu sinni til skrifa ráðherra
Meirihluti svarar fullum hálsi og hvetur ráðherra að biðjast afsökunar en minnihluti vill dempa málið niður
Elliði Vignisson bæjarstjóri lagði fram opið bréf til hans, sem embættismanns Vestmannaeyjabæjar, frá Kristjáni Möller samgönguráðherra í ríkisstjórn Íslands sem birtist á eyjafrettum.is 14. janúar. Enn fremur lagði bæjarstjóri fram afrit af tölvupóstum sendum til Kristjáns Möller 3. desember, 15. desember 2009, 4. janúar 2010 og 14 janúar.
Ályktun:
Bæjarstjórn lýsir mikilli undrun á framkomu ráðherra Kristjáns Möller og að hann skuli með þeim setja helstu hagsmuni Vestmannaeyja í farveg vantrausts og flokkspólitískra hagsmuna. Sérstaklega er undarlegt að ráðherra sveitarstjórnarmála sem fer með umboð forseta skv. 13. gr. stjórnarskrárinnar og þar með framkvæmdavald skuli frábiðja sér að vinna áfram með æðsta embættismanni Vestmannaeyjabæjar sem ráðinn er beint af bæjarstjórn Vestmannaeyja og sækir umboð sitt milliliðalaust til hennar. Slíkt er án efa fordæmalaust.
Í opnu bréfi ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála er bæjarstjóri einn gerður ábyrgur fyrir samhljóða samþykktum bæjarráðs og bæjarstjórnar og meðal annars sagt að beðið hafi verið eftir tillögum frá bæjarstóra um hvaða ferðir Herjólfs skyldi fella niður. Þar fer ráðherra með rangt mál. Þessi orð og afstaða ráðherra bendir til þess að hann þekki ekki efni tölvupósta senda honum 3. desember, 15. Desember 2009 og 4. janúar sl.. Kann það að skýra hvers vegna hann hefur ekki svarað þeim þrátt fyrir að í þeim sé óskað eftir viðbrögðum eins fljótt og verða má. Ráðherra skal því bent á að bæjarráð fjallaði um málið á fundi sínum 3. desember síðastliðinn og fól bæjarstjóra að svara rekstrarstjóra Eimskipa (er skrifaði bæjarráði) og gera grein fyrir þeirri afstöðu bæjarráðs að það muni ekki taka afstöðu til þess hvort eða hvaða ferðir verði felldar niður fyrr en tilkynning um slíka ákvörðun berst frá samgönguyfirvöldum. Sú ákvörðun barst 8. janúar síðastliðinn og var afgreidd af bæjarráði 12. janúar. Skjalastjóri Vestmannaeyjabæjar sendi síðan afrit af fundargerð til samgönguráðherra, Vegagerðarinnar og Eimskipa (afrit afhent bæjarfulltrúum).
Bæjarstjórn lýsir fullum stuðningi við bæjarstjóra og telur hann í einu og öllu hafa gætt hagsmuna bæjarfélagsins í því máli sem hér um ræðir. Þá minnir bæjarstjórn ráðherra á að bæjarstjóri hefur einungis gert fjölmiðlum grein fyrir einarðri afstöðu bæjarstjórnar og bæjarráðs og í engu vikið frá samþykktum þeirra. Sérstök ástæða er til að geta þess að öll efnisleg afstaða bæjarstjóra sem vísað er til í opnu bréfi ráðherra á sér grunn í einróma samþykktum bæjarstjórnar og bæjarráðs. Bæjarstjórn lítur svo á að afstaða samgönguráðherra til bæjarstjóra sé afstaða hans til lýðræðislega kjörinnar bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum og óttast að framkoma ráðherra kunni að skaða trúverðugleika hans sem ráðherra og valdi alvarlegum trúnaðarbresti milli Vestmannaeyjabæjar og samgönguráðherra. Trúnaðarbrest sem torveldar Vestmannaeyjabæ að gæta hagsmuna sinna gagnvart því ráðuneyti sem um ræðir, en það fer einnig með sveitastjórnarmál.
Bæjarstjórn hvetur ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála til að gæta að því að samskipti ráðherra og bæjarstjóra eru samskipti ríkis og sveitarfélags. Í svörum bæjarstjóra til fjölmiðla sem vikið er að í opnu bréfi ráðherra er hvergi vegið að persónu ráðherra þótt sannarlega hafi þar verið kveðið fastar að um embættisfærslur en venja er. Bæjarstjórn hvetur því ráðherra til að biðjast afsökunar á orðum sínum og svara þeim embættiserindum sem til hans er beint með hagsmuni umbjóðenda sinna að leiðarljósi.
Páley Borgþórsdóttir
Páll Marvin Jónsson
Gunnlaugur Grettisson
Arnar Sigurmundsson
Bókun minnihlutans
Bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans harma að umræður um samgöngur við Vestmannaeyjar, séu fallnar á það stig sem birtist í fjölmiðlum síðustu daga. Málefnið er of stórt og mikilvægt til þess.
Undirrituðum er ljóst að efnahagur íslensku þjóðarinnar er ekki sterkur um þessar mundir og mikill niðurskurður er óhjákvæmilegur í útgjöldum ríkisins, jafnvel í heilbrigðis- og menntakerfi. Því ber að þakka samgönguyfirvöldum fyrir að slá hvergi af og tryggja fjármagn í uppbyggingu á Landeyjahöfn, framtíðinni í samgöngum við Vestmannaeyjar. Það er viðurkenning á skilningi og þörfinni á bótum. Þetta ber bæði að þakka og virða.
Samgönguyfirvöld verða að gera sér grein fyrir því að slakar og ófullnægjandi samgöngur við Vestmannaeyjar um árabil, hafa skaðað samfélagið. Linnulaust barátta bæjarstjórnar fyrir skilningi og bótum hefur loksins skilað árangri. Það er bæjaryfirvöldum því bæði þungt og erfitt að sætta sig við niðurskurðarhnífinn. Það kann að birtast, bæði í umræðum og bókunum.
Að gefnu tilefni skal á það bent að Elliði Vignisson er framkvæmdastjóri bæjarstjórnar Vestmannaeyja og fylgir eftir ákvörðunum hennar.
Bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans hvetja alla sem þátt taka í stjórnmálum að mæta hverju máli á heiðarlegan og málefnalegan hátt. Erjur og þras skila minni árangri. Það höfum við reynt í starfi okkar á þessu kjörtímabili.
Páll Scheving Ingvarsson
Guðlaugur Friðþórsson
Stefán Jónasson









