Brian McDermott starfandi knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins Reading segist ánægður að eiga möguleika á að kalla Gunnar Heiðar Þorvaldsson til leiks fyrir leikinn gegn Nottingham Forest á morgun. „Hann hefur verið í kringum okkur síðustu vikurnar og er í baráttu um að verða valinn í hópinn sem mætir City. Ég þekkti til hans fyrir tveimur til þremur árum þegar hann var markakóngur í Svíþjóð og þá spilaði hann í Þýskalandi og í Danmörku.“