Eyjamenn lentu í talsverðu basli með neðsta lið 1. deildar í handbolta þegar liðin áttust við í Eyjum í dag. ÍBV er í þriðja sæti á meðan Þróttarar hafa ekki fengið stig í vetur en engu að síður var leikurinn jafn og spennandi lengst af. Þróttarar sýndu lipra takta og voru óheppnir að vera tveimur mörkum undir í hálfleik 16:14. En undir lok leiksins kom í ljós styrkleikamunur liðanna og Eyjamenn unnu sannfærandi 35:26.