Meistaraflokkur karla í handbolta byrjar nýtt ár með því að taka á móti Þrótti klukkan 13.30 í dag í Íþróttamiðstöðinni. Þróttur er neðst í deildinni, hafa tapað öllum leikjum sínum og því ætti róðurinn að verða Eyjamönnum nokkuð þægilegur í dag. ÍBV er hins vegar í þriðja sæti 1. deildar, þremur stigum á eftir Aftureldingu sem er í öðru sæti og fjórum stigum á eftir Selfyssingum. Efsta lið deildarinnar tryggir sér sæti í úrvalsdeild en næstu þrjú fara í umspil ásamt næst neðsta liði úrvalsdeildarinnar.