Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék æfingaleik í gærkvöldi þegar liðið mætti Víði í Garði. Leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni en Víðismenn komust yfir í leiknum. Guðjón Ólafsson jafnaði hins vegar metin en Guðjón spilaði ekkert síðasta sumar vegna meiðsla. Aleksandrs Cekulajevs, lettneskur leikmaður sem er til reynslu hjá ÍBV skoraði svo sigurmarkið.