Laugardaginn 23. janúar kl. 07.25
Sigurður Jónsson skrifar:

Aumt hjá Jóni Bjarnasyni, sjávarúvegsráðherra að mæta ekki til Eyja

Lítilsvirðir Vestmannaeyinga

Aumt hjá Jóni Bjarnasyni, sjávarúvegsráðherra að mæta ekki til  Eyja

Skelfing er það nú aumt hjá Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegsráðherra, að afþakka að mæta á baráttufund Eyjamanna gegn áformum Vinstri stjórnarinnar í sjávarútvegsmálum. Þessi fundur hefði nú átt að vera kjörið tækifæri fyrir sjávarútvegsráðherra að sannfæra Vestmannaeyinga að honum gengi aðeins gott eitt til með aðgerðunum og þær myndu engin áhrif hafa. Nei, hann lét sig hafa það að mæta ekki. Maður hlýtur því að efast um ágæti tiilagna hans.


Jón Bjarnason hefur gagnrýnt foryustumenn útgerðarmanna fyrir að hafa í hótunum um að sigla flotanum í land og binda við bryggju. Ég get tekið undir að menn eiga ekki að hafa í slíkum hótunum.

En hvað sagði Jón Bjarnason. Það gengur ekki að útgerðarmenn hafi í hótunum. Við þurfum að setjast niður sameiginlega og vinna að lausn.

En svo mætir Jón sjávarútvegsráðherra ekki á baráttufund hagsmunaaðila í Eyjum,þar sem þessi mál voru rædd. Þetta er lítilsvirðing hjá sjávarútvegsráðherra við Eyjamenn.

Fyrningaleiðin er ekki rétta leiðin, en það þarf að ræða málin og gera breytingar á sjávarútvegsstefnunni,sem allir geta unað sæmilega sáttir við.

Auðvitað gengur það ekki hjá sjávarútvegsráðherra og Vinstri stjórninni að vera með einhliða ákvarðanir, sem geta komið til með að skaða verulega sjávarútvegsbyggðirnar.

Jón, sjávarútvegsráðherra, er ekki samkvæmur sjálfum sér þegar hann neitar að mæta á fund Eyjamanna til að ræða málin. Þá er það hann sjálfur sem stendur uppi sem aðilinn sem hótar.

sjonsson.blog.is

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn