Karlalið ÍBV vann afar sannfærandi sigur á Víkingum en liðin eru í þriðja og fjórða sæti 1. deildar Íslandsmótsins í handbolta. Eyjamenn voru með yfirhöndina allan tímann og náðu mest átta marka forystu undir lok leiksins. Hins vegar skoruðu Víkingar sjö mörk gegn aðeins einu marki heimamanna á lokakaflanum og lokatölur urðu 29:27 en sigur Eyjamanna aldrei í hættu.