Mánudaginn 01. febrúar kl. 11.18

Leikskólabörn mynduðu vinahring í morgun

Myndagallerí fylgir fréttinni

Leikskólabörn mynduðu vinahring í morgun
Leikskólabörn mynduðu vinahring í morgunLeikskólabörn mynduðu vinahring í morgunLeikskólabörn mynduðu vinahring í morgunLeikskólabörn mynduðu vinahring í morgunLeikskólabörn mynduðu vinahring í morgun
Leikskólabörn í Vestmannaeyjum mynduðu í morgun risavaxinn vinahring á lóð Landakirkju.  Uppátækið er í tilefni dags leikskólans sem haldinn verður laugardaginn 6. febrúar næstkomandi en markmið dagsins er að vekja áhuga á starfinu og sýna fram á gildi þess fyrir menningu og þjóðarauð.  Af því tilefni verður myndarleg dagskrá sem hófst með vinahringnum og heldur svo áfram bæði föstudag og laugardag.  Lesa má nánar um dagskránna og sjá myndir af vinahringnum hér að neðan.

 
Dagskrá leikskóla Vestmannaeyjabæjar vegna dags leikskólans 6.febrúar 2010 
 
Mánudagurinn 1.febrúar
Kl.10:30 Vinahringur allra leikskólabarna myndaður á lóð Landakirkju. 
 
Föstudagurinn 5.febrúar
Kl.08:00-09:00 Foreldrum boðið í morgunkaffi á Sóla, Kirkjugerði og 5 ára deildinni í Hamarsskóla.
 
Kl.14:00 Formleg opnun sýninga í Safnahúsi
Video sem sýnir sögu leikskólans í Vestmannaeyjum í máli og myndum.
Sýning á búnaði og munum sem tengjast sögu leikskólanna í Eyjum.
Sýning á verkum Sigurbjörns Sveinssonar barnabókahöfundar.
Afhending mynda og ýmissa gagna frá leikskólunum til varðveislu í Safnahúsi.
Myndverkasýning barna í leikskólunum, þar sem þemað í ár er „Þetta geri ég í leikskólanum mínum“.
 
Myndverkasýningarnar verða á eftirtöldum stöðum:
Safnahúsi
Vilberg kökuhús
Íþróttamiðstöð
Vöruval
Í versluninni Vöruval verður einnig sýning á námsgögnum ofl. sem tilheyra leikskólakennaranum, bæði nýtt og gamalt. 
 
Laugardagurinn 6.febrúar
Kl.14:00 Fyrirlestur í safnahúsi. Fluttir verða tveir stuttir fyrirlestrar. Annars vegar um barnabókahöfundinn Sigurbjörn Sveinsson barnabókahöfund sem þær Adda Jóhanna Sigurðardóttir og Sigurbjörg Jónsdóttir leikskóla- og grunnskólakennarar flytja, og hins vegar Stiklað á stóru í sögu leikskólans í Vestmannaeyjum sem Þóranna Sigurbergsdóttir flytur. 
 
Safnahúsið verður opið laugardaginn 6. og sunnudaginn 7. febrúar 14-16 vegna dags leikskólans. 
 
Allar sýningarnar verða uppi út febrúarmánuð.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn