Miðvikudaginn 03. febrúar kl. 13.37
Fréttatilkynning

Todmobileballinu frestað um viku

vegna óviðráðanlegra orsaka

Todmobileballinu frestað um viku
Vegna óviðráðanlegra ástæðna verður balli Todmobile sem vera átti þann 6. febrúar næstkomandi frestað til laugardagsins 13. febrúar.  Ástæða þess er sú að tveir meðlimir Todmobile eru fastir í vinnu til 22:00 á laugardagskvöldið í Reykjavík og ekki er útlit fyrir að hægt verði að koma þeim yfir vegna veðurs á laugardagskvöld.  Hallarmenn og Todmobileliðar þora þar af leiðandi ekki að taka sjénsinn á því að þurfa að blása ballið af um kvöldið þegar allir eru komnir í gírinn.

Í staðinn mun Todmobile mæta þann 13 febrúar til okkar í Höllina og slá upp Risaballi.
 
Hallarfólki og Tomobile þykir þetta mjög leitt en við þessu er ekkert að gera við skemmtum okkur þá bara ennþá betur þann 13. febrúar.
 
Á Volcano Café verður hinn frábæri Dj-Kiddi Bigfoot á Laugardagskvöldinu en Kiddi hefur verið tíður gestur okkar þar og aldrei hefur klikkað fjörið hjá honum og að sjálfsögðu er FRÍTT INN hjá okkur á Volcano Café.
 
Með stuðkveðju 
Bó í Höllinni.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi