Föstudaginn 05. febrúar kl. 09.13

Pétur Run ekki með ÍBV næsta sumar

Pétur Run ekki með ÍBV næsta sumar Pétur Runólfsson í leik með ÍBV.
Pétur Runólfsson mun ekki leika með ÍBV í sumar í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu.  Pétur, sem á tvö ár eftir af samningi sínum hjá félaginu hefur tilkynnt forráðamönnum ÍBV að hann vilji losna undan samningi sínum en hann hyggst taka sér frí frá knattspyrnuiðkun.  Pétur hefur verið fastamaður í liði ÍBV undanfarin ár, bæði leikið á miðjunni og sem bakvörður og átti mjög gott tímabil í fyrra.

Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag en þar er m.a. rætt við Pétur.
 
„Ég hef ekki nægilega mikla ánægju af knattspyrnunni um þessar mundir og vil taka mér pásu.  Fyrst ég er ekki nægilega vel upplagður treysti ég mér ekki til þess að leggja mig 100% í verkefnið,“ sagði Pétur við Morgunblaðið í gær.
 
Þá skrifaði Ingi Rafn Ingibergsson undir þriggja ára samning við Selfoss en Ingi Rafn tilkynnti forráðamönnum ÍBV strax í haust að hann myndi ekki leika með félaginu í sumar.
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi