Mánudaginn 08. febrúar kl. 14.40
Daði Ólafsson skrifar:

Við eigum kvótann, þjóðin

Við eigum kvótann, þjóðin
Þessi lína er sú sem kemur líklega oftast upp þegar rætt er um framtíð sjávarútvegsins á Íslandi. Vissulega er auðlindin sameign þjóðarinnar en spurningin sem þetta fólk hefur sjaldnast velt fyrir sér er: "Hvað á að gera við auðlindina þegar búið er að reka fyrirtækin í þrot?" (Deloitte 30. september 2009)

Þetta fólk er ekki allt svona spennt að fara að róa heldur er bróður partur þess þeirrar skoðunar að ríkiskassinn eigi að fá meira af hverju kílói uppúr sjó. Trú manna virðist því vera sú að með því að gera aflaheimildirnar upptækar og þannig setja sjávarútveginn á hausinn fái ríkissjóður meira fyrir auðlindina þegar hún verður leigð út aftur. Þarna er babb í bátnum vegna þess að stór hluti skulda sjávarútvegsins (70% hefur heyrst) er í gegnum íslenska banka, aðallega í Landsbankanum sem aftur eru í eigu ríkisins. Svo við, skattgreiðendur, í þessu landi fáum það beint í andlitið ef við setjum íslenskan sjávarútveg á hausinn vegna þess að Landsbankinn fer á hausinn um leið.
 
Ólína skilur ekkert í því hvað sjómenn eru að væla því það fækki ekkert fiskunum í sjónum þó svo að útgerðin fari á hausinn. Það er rétt hjá henni en það skal hafa hugfast að það er ekki sjálfgefið að arðsemi sé af sjávarútvegi og er sjávarútvegur víða um heim er háður ríkisstyrkjum þrátt fyrir ágætis fiskimið, vegna lélegrar stýringar á sókn í auðlindina og þar af leiðandi stöðuleika, lélegum rekstaraðstæðum, skorts á sérþekkingu, lélegrar markaðssetningar og margra annarra þátta . Þetta er allt til á Íslandi og í þessu er mikil verðmæti, verðmæti sem gæti tapast úr landi ef íslensk sjávarútvegsfyrirtæki verða sett á höfuðið því það er eftirsókn eftir góðu fólki annarsstaðar.Því það eru eflaust margir sem eru spenntir fyrir því að troða sér inn á þá markaði þar sem íslenskur fiskur er seldur. Tekjur sjómanna velta á verðmætum aflans og það er ekki þannig að körin hverfi af bryggjunni og birtist í fiskbúðum í Englandi og peningaseðlar komi í staðinn og það er kominn tími til að menn sem standa að óábyrgum áróðri gegn útgerð í landinu átti sig á því. 
 
Daði Ólafsson
Meðstjórnandi í stjórn Eyverja
 

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi