Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur land undir fót í vikunni og heldur í fundaferð um allt land, þá þriðju á sjö mánuðum þar sem landsmönnum er boðið uppá milliliðalaust samtal um þau stóru og viðamiklu úrlausnarefni sem unnið er að. Fimmtudagskvöldið 11. febrúar verður fundur haldinn í Vestmannaeyjum í Kiwanishúsinu og hefst hann kl. 20:00. Framsögumenn eru þingmennirnir Róbert Marshall, Oddný Harðardóttir og Ólína Þorvarðardóttir.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 10. febrúar kl. 16.21
Samfylking boðar samstöðu um endureisn
- Opinn fundur í Kiwanis í annað kvöld
Fundaferðin ber yfirskriftina samstaða um endurreisn en það er eitt af stóru verkefnunum að vinna að samstöðu landsmanna um endurreisn og bætt og betra samfélag. Einn veigamesti þátturinn í endurreisn efnahagslífsins er að ná endum saman í ríkisfjármálum, án þess að ganga hart að velferðarkerfinu og þeim sem veikast standa og helst þurfa því á stuðningi þess að halda.
Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir ýmis konar úrræðum sem nýst hafa fjölskyldum og einstaklingum í kjölfar efnahagshrunsins, auk þess hefur verið unnið að stefnubreytingu á fjölmörgum sviðum svo sem í skattamálum, umhverfismálum og sjávarútvegsmálum. Þá hefur ríkisstjórnin unnið jafnt og þétt að mikilvægum verkefnum í atvinnumálum, verkefnum sem munu vega þungt í endurreisn.
Allt þetta og margt fleira gefst Eyjamönnum kostur á að ræða á opna fundinum í Kiwanishúsinu á fimmtudagskvöld, allir velkomnir.
Fréttatilkynning.




.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)


