Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra virðist ætla áfram að krossleggja puttana og vona að Hæstiréttur reddi nú málunum fyrir hann. Enginn vilji virðist vera til að taka á þessu stóra vandamáli á heildstæðan máta. Talsmaður neytenda lagði fram tillögur á sínum tíma um að skipaður yrði gerðadómur til að leita ásættanlegrar niðurstöðu fyrir bæði lánveitendur og lántakendur.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Laugardaginn 13. febrúar kl. 19.15
Eygló Harðardóttir bloggar:
Gylfa er slétt sama!
- Skjaldborg ríkisstjórnarinnar er byggð utan um banka og fjármálastofnanir, útrásarvíkinga og fjárglæframenn
Það getur verið að einhverjum finnist áhugavert að hlusta á svör viðskiptaráðherra við nokkrum spurningum sem ég bar upp við ráðherrann eftir að Guðmundur Andri Skúlason, talsmaður samtaka lánþega hafði ítrekað reynt að fá svör frá ráðherranum en án árangurs.
En heldur voru þau rýr, líkt og nú þegar ráðherrann bendir á að lánin séu svo margvísleg. Þýðir það að hann ætlar áfram að benda fólki á að leita réttar síns fyrir dómstólum?
Á sama tíma og ráðherrar varpa frá sér allri ábyrgð og segja beinlínis að hver og einn þurfi nú að stefna bönkum og eignaleigufyrirtækjum ætli þeir sér að fá leiðréttingu sinna mála, hafa stjórnvöld unnið markvisst að því að draga úr möguleikum almennings á að gera einmitt það. Stjórnvöld hafa hækkað kostnað við málsóknir og ekkert gert til að auka möguleika fólks á gjafsókn.
Enn á ný kemur í ljós að skjaldborg ríkisstjórnarinnar er vissulega til staðar. En hún er byggð utan um banka og fjármálastofnanir, útrásarvíkinga og fjárglæframenn, en almenningur er utangarðs og verður að berjast upp á eigin spýtur.
Tekið af bloggsíðu Eyglóar:




.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



