Stelpurnar í ÍBV spiluðu líklega sinn besta leik í vetur þegar liðið tók á móti efsta liði 2. deildar, Gróttu sem hafði fyrir leikinn ekki tapað stigi í vetur. Eyjastúlkur voru hins vegar ekkert smeykar gegn toppliðinu, byrjuðu af miklum krafti og voru sex mörkum yfir í hálfleik 22:16. Mestur varð munurinn tíu mörk í seinni hálfleik en lokatölur urðu 38:30 ÍBV í vil.