Þriðjudaginn 23. febrúar kl. 08.46
Dans á rósum í hljóðveri:

Endurgera tvö eldri lög

Endurgera tvö eldri lög
Eyjasveitin Dans á Rósum skellti sér í hljóðver um helgina til að taka upp tvö ný lög. Reyndar eru bæði lögin gömul en sveitin endurútsetur þau og gerir að sínum. Upptökurnar fóru fram í Eyjum, í Island Studios en nýr meðlimur bættist í sveitina á haustmánuðum, gítarleikarinn Ingi Valur Grétarsson og sér hann ennfremur um upptökur.

Auk Inga Vals eru í sveitinni þeir Viktor Ragnarsson, Þórarinn Ólason, Eyvindur Ingi Steinarsson og Helgi Víkingsson. Sveitin hefur áður gefið út eldri lög og gert ansi vinsæl, Jamaica, Dansað á dekki og Nú er gaman fengu mikla spilun en auk þess hefur sveitin átt vinsæl lög eins og Fallinn, Eitt augnablik og Langar samt í þig.
 
Hljómsveitarmeðlimir voru í miðjum upptökum þegar blaðamann bar að garði í Island Studios en þeir vildu alls ekki gefa upp hvaða lög þeir væru að endurvinna. „Það er bara eitthvað sem á eftir að koma skemmtilega á óvart,“ sagði Viktor Ragnarsson, bassaleikari.
 
„Við vitum að við erum ekkert að finna upp hjólið í þessu en við erum á heimavelli í þessu. Sigurrós er t.d. með sitt hlutverk á hreinu og við teljum okkur vera með okkar á hreinu. Það er ekkert allra að endurvinna lög eins og þetta og gera það vel en við teljum okkur hafa sýnt það að við kunnum þetta ágætlega. Svo er náttúrulega alveg ótrúlegt að vera með þessa aðstöðu hér í sínum heimabæ, eitt best hljóðver landsins í næsta húsi,“ bættu þeir félagar við.
 
Þess má svo geta að hægt er að nálgast öll lög með sveitinn á vefnum www.tonlist.is, fyrir þá sem vilja rifja upp sumarsmelli síðustu ára.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn