Þriðjudaginn 02. mars kl. 13.53

Ásókn í störf á nýjum frystitogara

Ásókn í störf á nýjum frystitogara
Útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum segir mikla ásókn í störf um borð í nýjum frystitogara sem fyrirtækið hefur keypt af þrotabúi dótturfélags Nýsis. Ráða þarf í rúmlega tuttugu stöður um borð og segir Guðni Ingvar Guðnason útgerðarstjóri að nú þegar hafi tvöfalt fleiri fyrirspurnir borist eftir að auglýst var eftir skipstjóra.

Togarinn verður viðbót við flota Vinnslustöðvarinnar og hefur fengið nafnið Gandí, en neta- og humarbátur fyrirtækisins sem bar það nafn hefur nú hlotið nafnið Kristbjörg. Nýi Gandí er uppsjávarskip sem verður notað til veiða á makríl og síld. Togarinn er væntanlegur til Eyja í næsta mánuði.
 
www.ruv.is greindi frá.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi