Miðvikudaginn 03. mars kl. 16.57
Góður gangur í loðnunni - Ekki búist við meiri kvóta:

Átta skip með fullfermi til Vestmannaeyja í dag

Átta skip með fullfermi til Vestmannaeyja í dag
Loðnubátarnir streymdu með fullfermi til Eyja í dag af miðunum í Faxaflóa. Samtals átta skip með um 9000 tonn og vinnsluskipið Huginn kom inn til að losa sig við hrat. Vinnsluskipið Guðmundur var á miðunum að  frysta loðnu. Öll loðnan fer í hrogna­vinnslu og var búið að vinna hátt í 2000  tonn af hrognum sem er dýrasta afurðin sem loðnan gefur.  Vertíðin er að syngjast upp og ekki er gert ráð fyrir viðbótarkvóta nema að vestur­ganga komi þetta árið.

Þrjú skip Ísfélagsins komu til Eyja í dag, Júpíter með 1300 tonn, Álsey 1500 tonn, Þorsteinn 1000 tonn og Guðmundur var á miðunum á fullu að vinna. „Þeir eru allir með fullfermi,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins, sem var ánægð­ur með ganginn í loðnunni. „Þeir voru í Faxaflóanum, norður undir Snæfellsnesi og má segja að dagurinn í dag hafi verið sá fyrsti þar sem góð veiði og sæmilegt veður fóru saman.“
 
Ísfélagið  er með þessum afla búið að taka á móti um 15.000 tonnum og á eftir um 5000 til 6000 tonn. Framleiðsla á hrognum er um 1200 tonn.
 
Hjá Vinnslustöðinni var Ísleifur með 1100 tonn, Kap 1200 tonn og Sighvatur Bjarnason 1500 tonn. „Svo er gamla Kap á leiðinni með 800 tonn,“ sagði Guðni Ingvar Guðnason, útgerðarstjóri. „Sveinn Rúnar Valgeirsson, sem nú er starfsmaður hafnarinnar, tók að sér að fara með þá gömlu og veiddu hin skipin í hana.“
 
Guðni segir að miklu skipti að ná loðnunni núna þegar hún er dýrmætust vegna hrognanna. „Við eigum eftir um 2000 tonn af þeim 11.000 tonna kvóta sem við eigum eftir þessa törn,“ sagði Guðni.   Í Vinnslustöðinni er búið að vinna um 500 til 600 tonn af hrognum. Unnið er á vöktum í báðum húsum. Eyþór og Guðni segja ekki líkur á meiri kvóta. 
 
Huginn VE, sem frystir hrogn um borð, landaði 800 tonum af hrati í dag. Guðmundur Huginn Guðmundsson, skipstjóri, sagði að kvótinn væri á þriðja þúsund tonn.  „Ætli við séum ekki rétt rúmlega hálfnaðir með hann,“ sagði Guðmundur.
 
Fréttir greindi frá.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Ester Óskarsdóttir eftir tap gegn Val
Vinaminni 39 ár frá gosinu.
Þrettándinn 2012
Mugison - Kletturinn 2011
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði | Öldudufl við Landeyjahöfn
Hellisheiði Öldudufl við Landeyjahöfn