Miðvikudaginn 03. mars kl. 13.44
Líf og fjör í Vestmannaeyjahöfn:

Sjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunar

Myndagallerí fylgir fréttinni

Sjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunar
Sjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunarSjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunarSjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunarSjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunarSjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunarSjö loðnuskip koma með loðnu til Eyja og bíða löndunar
Ísleifur kemur að bryggju drekkhlaðinn og Kap fylgir í kjölfarið.
Stöðug umferð loðnuskipa var inn í Vestmannaeyjahöfn í morgun en sjö skip bíða nú löndunar eða eru í löndun.  Gærdagurinn var mjög góður hvað veiði varðar en flest skipanna voru við veiðar í Faxaflóa.  Hrognavinnsla er í fullum gangi, bæði í Vinnslustöð og Ísfélag og vonast menn til að loðnan sem nú kemur að landi, sé hæf til vinnslu hrogna á Japansmarkað.

 
Verið er að landa upp úr Ísleifi VE hjá Vinnslustöðinni en hann kom inn í morgun.  Í kjölfarið, í bókstaflegri merkingu, kom Kap VE og stuttu síðar Kap II Ve en öll skipin eru með fullfermi.  Huginn VE liggur einnig við bryggju og er að losa sig við afskurð en um leið verður losað um í frystigeymslu skipsins.  Hrognavinnsla fer fram um borð í Huginn en skipið heldur aftur út um leið og búið er að taka afskurðinn.
 
Haft er eftir Guðna I. Guðnasyni, útgerðarstjóra hjá Vinnslustöðinni á www.mbl.is að áhersla væri að koma Ísleifi og Kap sem fyrst á veiðar á ný.  Veðurútlit fyrir morgundaginn væri gott en útlit fyrir umhleypinga. Hægt væri að veiða allan sólarhringinn, en hærra hlutfall virtist vera af eftirsóttu kvensíli í afla sem fengist í björtu. Guðni sagði að góður þroski væri í hrognunum, sem væru fryst fyrir Japansmarkað.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi