Nú er unnið að því að setja upp leikritið Fullkomið brúðkaup, eftir Robin Hawdon, hjá Leikfélagi Vestmannaeyja. Leikfélag Akureyrar sýndi leikritið við gríðarlega miklar vinsældir veturinn 2005 til 2006, bæði norðan heiða og í Borgarleikhúsinu í Reykjavík. Um er að ræða bráðfyndinn farsa en slíkt hefur alltaf gengið vel í Eyjumenn.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Fimmtudaginn 04. mars kl. 11.46
Fullkomið brúðkaup á fjalirnar í Bæjarleikhúsinu eftir hálfan mánuð:
Lofa allri fjölskyldunni góðri skemmtun
-segir Ari Matthíasson, leikstjóri - Reyndir og efnlegir leikarar
Brúðguminn vaknar með konu sér við hlið sem hann hefur aldrei séð fyrr. Hver er þessi kona? Hvað gerðist kvöldið áður? Hann flækist inn í atburðarás sem hann ræður ekkert við, brúðurin á leiðinni, herbergið í rúst, nakin kona í rúminu og þá er bankað, eins og leikritinu er lýst á vefsíðunni Gríman.is.
Ari Matthíasson leikstýrir verkinu hjá Leikfélagi Vestmannaeyja en sex leikarar stíga á svið, þau Sindri Ragnarsson, Vilhjálmur Bergsteinsson, Hjalti Pálsson, Emma Bjarnadóttir, Ásta Jóna Jónsdóttir og Elín Sólborg Eyjólfsdóttir. Ari sagði í samtali við blaðamann Frétta að leikarahópurinn væri góður. „Þetta er breiður aldurshópur, frá 18 ára og upp í fertugt sem hentar verkinu mjög vel. Sumir eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu á meðan aðrir eru orðnir mjög reyndir og það er góð þróun fyrir áhugamannaleikhús því það þarf alltaf að vera ákveðin endurnýjun. Við fengum líka mikið af efnilegu fólki í prufur en þegar allt kemur til alls þá þurfti m.a. að velja í hlutverk eftir aldursamsetningu hópsins. Pabbinn gat t.d. ekki verið á sama aldri og brúðurin. Auk þess er kostur að hafa breiðan aldurshóp í svona verki.“
Ari sagði að stefnan væri að frumsýna föstudaginn 19. mars næstkomandi eða eftir rúmar tvær vikur. „Við byrjuðum að æfa í byrjun febrúar þannig að æfingaferlið er um það bil sjö vikur. Það er eðlilegt. Stundum er æfingaferlið tveir mánuðir en maður verður að huga að aðstæðum í bæjarfélaginu. Hér er vertíð og ekki hægt að halda fólki endalaust á æfingum. Þetta er auk þess áhugamannaleikhús og því ekki hægt að ætlast til þess að fólk standi á æfingum í sex klukkutíma eftir erfiðan vinnudag. Það er ákveðin kúnst að halda álaginu réttu svo að leikararnir fái hreinlega ekki nóg.“
Auk leikaranna sex koma fjölmargir að uppsetningunni. „Anton Eggertsson hefur umsjón með leikmyndinni, Gíslína Dögg Bjarkadóttir sér um búninga, smink og leikmynd og Viktor Rittmuller um lýsingu. Þau hafa svo herskara af fólki með sér þannig að fyrir utan þessi sex sem standa á sviðinu, er stór hópur fólks sem hjálpar til.“
Hvernig líkar þér að vinna hjá Leikfélagi Vestmannaeyja?
„Mér líkar það mjög vel. Aðstaðan hér er mjög fín, leikarahópurinn er sterkur og stjórnin er að standa sig mjög vel. Mér skilst að stundum hafi vantað eldri leikara í hópinn en við erum með breiðan aldurshóp núna. Samfélagið á Íslandi er auk þess að breytast og það hjálpar áhugaleikhúsum eins og hér að fá fólk til starfa.“
„Mér líkar það mjög vel. Aðstaðan hér er mjög fín, leikarahópurinn er sterkur og stjórnin er að standa sig mjög vel. Mér skilst að stundum hafi vantað eldri leikara í hópinn en við erum með breiðan aldurshóp núna. Samfélagið á Íslandi er auk þess að breytast og það hjálpar áhugaleikhúsum eins og hér að fá fólk til starfa.“
Ari lofar Eyjamönnum góðri skemmtun 19. mars og á sýningunum sem fylgja í kjölfarið. „Þetta leikrit er gamanverk fyrir alla fjölskylduna. Fullkomið brúðkaup er farsi af bestu gerð sem fjallar um misskilning og vandræði sem karlar geta komið sér í þegar litli heilinn fær að ráða för,“ sagði Ari að lokum.








.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)


