Fréttir af aukinni skjálftavirkni í Eyjafjallajökli hafa vakið upp spurningar meðal Eyjamanna um hvernig eldgos í jöklinum gæti haft áhrif í Eyjum. Þannig er vatnsból Eyjamanna við rætur jökulsins og Landeyjahöfn gæti verið í hættu ef jökulhlaup yrði í kjölfar eldgoss. Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja fundar í dag vegna málsins en Elliði Vignisson, bæjarstjóri og varaformaður nefndarinnar segir að fundurinn sé ekki haldinn vegna þess að um bráða hættu sé að ræða.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Föstudaginn 05. mars kl. 15.54
Almannavarnarnefnd fundar í Eyjum
„Við fundum á eftir í almannavarnarnefnd til að fara yfir stöðuna. Við eigum ýmiskonar áætlanir við hverskonar vá, þar á meðal eldgosi í Eyjafjallajökli og mögulegu hlaupi í kjölfarið. Á eftir förum við m.a. yfir þau. Í augnablikinu erum við þó fyrst og fremst að hugsa um vatnsbólið. Störfin nú eins og endranær ganga út á að undirbúa hið versta en vona hið besta. Enn sem komið er bendir ekkert til þess að neinskonar hætta steði að okkur Eyjamönnum hvað þetta varðar, hvorki vantsbólinu, né öðru. Fundurinn á eftir er því á engan mátt boðaður vegna þess að við teljum bráða hættu á ferð. Við erum bara að fara yfir stöðuna,“ sagði Elliði.
Síðasta gos í Eyjafjallajökli var 1821 - 1823 og þar á undan árið 1612. Um landnám Íslands er einnig talið að gosið hafi í jöklinum. Gos í Eyjafjallajökli hafa almennt ekki verið hamfaragos, þau byrja rólega en færast svo í aukana. Árin 1994 og 1999 var mikil jarðskjálftavirkni í Eyjafjallajökli og talið að kvikuinnskot hafi verið djúpt í fjallinu, sem ekki náði að komast upp á yfirborðið, segir í frétt á www.dv.is




.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



