Föstudaginn 05. mars kl. 08.26

Eyjabandið Vangaveltur spilar á Samfés-hátíðinni

Eyjabandið Vangaveltur spilar á Samfés-hátíðinni
Um helgina fer fram Samfés-hátíð í Laugardals­höll en Samfés eru samtök félagsmiðstöðva á landinu.  Samfés-hátíðin er tveggja daga hátíð ungmenna þar sem boðið verður upp á ball á föstudeginum og söngvakeppni á laugardeginum.  Búist er við að milli fjögur og fimm þúsund ungmenni muni fjölmenna á hátíðina en á ballinu mun m.a. hljómsveitin Vangaveltur frá Vestmanna­eyjum, leika fyrir dansi. 

Valið á hljómsveitum fyrir ballið var afar strembið en sveitirnar þurftu að gjöra svo vel og fara í hljóðver, taka upp eitt lag og senda inn í von um að verða valin.  Fjórar hljómsveitir voru valdar, þrjár af höfuðborgarsvæðinu og eru Eyjapeyjar því einu fulltrúar landsbyggðarinnar.  Aldrei fyrr hafa fleiri hljómsveitir sótt um og var valið því enn erfiðara en áður.  Á ballinu verða tvö svið, stóra og litla sviðið en unglinga­sveitirnar munu spila á litla sviðinu.  Auk þeirra munu stórsveitirnar Ingó og Veðurguðirnir, Jeff Who? og Páll Óskar troða upp á stóra svið­inu.
 
Blaðamaður Frétta leit við á æfingu hjá Vanga­veltum í vikunni en strákarnir voru að æfa í ­stofunni heima hjá einum þeirra.  Þeir eru búnir að æfa upp sex lög sem þeir ætla að flytja, hvert öðru betra og fékk blaðamaður að heyra eitt þeirra.  Strákarnir munu án efa gleðja strákana á ballinu með lögunum og bræða hjörtu stelpn­anna.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi