Föstudaginn 05. mars kl. 11.26
Nýja fjölnota íþróttahúsið

Setur svip á umhverfið

Setur svip á umhverfið
Setur svip á umhverfiðSetur svip á umhverfiðSetur svip á umhverfið
Senn rís fjölnota íþróttahús við Týsheimilið og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið til notkunar í haust. Húsið er 4500 fermetrar að innanmáli. Hæst fer það í fimmtán metra. Það er hannað af TPZ teikni­stofu og verður bogadregið eins og sést á teikningunni og á að falla vel að umhverfinu. Mikið þurfti að grafa og er barðið tíu metrar syðst þannig að þeim megin stendur húsið u.þ.b. fimm metra upp fyrir. Þrátt fyrir það mun húsið setja svip sinn á umhverfið eins og sést á samanburði þess við Týsheimilið.

Knattspyrnumenn hugsa sér gott til glóðarinnar að fá að æfa innanhúss yfir vetrartímann en fleiri íþróttagreinar munu nýta húsið. Samkvæmt tillögu að skipulagi innanhúss er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir frjálsar íþróttir. Er gert ráð fyrir 60 m hlaupa­brautum og aðstöðu fyrir bæði langstökk og hástökk. Einnig munu golfarar geta nýtt aðstöð­una og jafnvel fleiri. Húsið verður ekki hitað upp sem á við við um flest ef ekki öll stór fjölnotahús hér á landi.
 
Til að sjá teikningar af nýja fjölnota íþróttahúsinu, smelltu hér og hér.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi