Laugardaginn 06. mars kl. 12.21
Lengjubikar karla:

Breiðablik hafði betur í gærkvöldi

Eyjamenn skutu tvívegis í tréverkið en lokatölur urðu 0:2

Breiðablik hafði betur í gærkvöldi Frá viðureign liðanna fyrir ári síðan. Mynd: www.fotbolti.net
Breiðablik hafði betur gegn ÍBV þegar liðin áttust við í Lengjubikarnum, eins og deildarbikarkeppnin heitir í ár.  Lokatölur urðu 0:2 fyrir Blikum en leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi.  Eyjamenn voru óheppnir að skora ekki í leiknum, tvö skot Tryggva Guðmundssonar og Antons Bjarnasonar smullu í tréverkinu  og Tonny Mawejje átti hörkuskot utan teigs í hliðarnetið. 

Nánar var sagt frá leiknum á www.fotbolti.net og má lesa lýsinguna hér að neðan.
 
Guðmundur Kristjánsson kom Blikum yfir um miðjan fyrri hálfleikinn með góðu skoti úr teignum upp í þaknetið en Alfreð Finnbogason hafði lagt upp markið með góðri sendingu inn á Guðmund.
 
Alfreð var svo sjálfur nálægt því að skora eftir rúmlega hálftíma leik þegar fast skot hans fór í þverslá og hinum megin á vellinum átti Tonny Mawejje gott skot fyrir utan teig sem flestir í Kórnum töldu að hafa farið inn í markið en þegar betur var að gáð fór boltinn rétt framhjá og stoppaði í hliðarnetinu, utanverðu.
 
Staðan í hálfleik 0-1 fyrir Breiðablik sem var skráð sem útilið í Kórnum í kvöld. Snemma í síðari hálfleik áttu bæði lið aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan vítateig. Fyrst skaut Tryggvi Guðmundsson rétt framhjá fyrir ÍBV og svo varði Albert Sævarsson frá Alfreð Finnbogasyni.
 
Alfreð Finnbogason var að venju skeinuhættur í framlínu Breiðabliks. Hann nátti frábært skot á 69. mínútu sem Albert Sævarsson rétt náði að baka í horn en sjö mínútum síðar náði Albert ekki að koma neinum vörnum við þegar Alfreð lyfti boltanum yfir hann á frábæran hátt.
 
Skömmu síðar átti Tryggvi Guðmundsson svo aukaspyrnu sem fór í þverslá og hinum megin á vellinum skaut Haukur Baldvinsson rétt framhjá úr góðu færi. Tveimur mínútum síðar skaut varamaðurinn Anton Bjarnason góðu skoti í stöngina á marki Blika.
 
 
ÍBV: Albert Sævarsson, Arnór Eyvar, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Andri Ólafsson (Anton Bjarnason '65), Matt Garner, Yngvi Borgþórsson (Ásgeir Aron Ásgeirsson '46), Finnur Ólafsson (? '84), Tonny Mawejje, Þórarinn Ingi Valdimarsson,Tryggvi Guðmundsson, Eyþór Helgi Birgisson (Gauti Þorvarðarson '65).
 
Breiðablik: Sigmar Sigurðsson, Árni Kristinn Gunnarsson (Rannver Sigurjónsson '81), Elfar Freyr Helgason (Olgeir Sigurgeirsson '44), Kári Ársælsson, Arnór Sveinn Aðalsteinsson, Finnur Orri Margeirsson, Jökull Elísabetarsson, , Guðmundur Kristjánsson, Rafn Andri Haraldsson, Alfreð Finnbogason (Elvar Sigurðsson '87), Kristinn Steindórsson (Haukur Baldvinsson '72).
 
Gult spjald: Kári Ársælsson, Breiðablik ('52), Rafn Andri Haraldsson, Breiðabik ('62)

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi