Leikmenn og stuðningsmenn enska úrvalsdeildarliðsins Portsmouth, sem Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson leikur með, hafa ekki haft mikla ástæðu til að fagna í vetur. Liðið er í neðsta sæti, vandræði utan vallar hafa loðað við félagið í allan vetur og nú síðast voru dregin níu stig af félaginu, sem veldur því að örlög liðsins eru nánast ráðin í ensku deildarkeppninni. En annað er upp á teningnum í FA-bikarkeppninni þar sem Portsmouth er nú komið í undanúrslit sem verða leikin á þjóðarleikvanginum Wembley.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Laugardaginn 06. mars kl. 20.51
Hermann og félagar á Wembley
Hermann fagnar sigri í FA bikarkeppninni 2008 ásamt fyrrum félags sínum, Glen Johnson sem nú er í herbúðum LiverpoolPortsmouth lagði annað úrvalsdeildarlið að velli, Birmingham á heimavelli sínum 2:0. Hermann lék allan tímann í hjarta varnarinnar og stóð að venju fyrir sínu og gott betur.
Portsmouth þekkir ágætlega til þess að spila stóra bikarleiki á Wembley en félagið vann FA bikarinn veturinn 2007-2008 með því að leggja Cardiff að velli. Hermann lék allan tímann, kinnbeinsbrotnaði m.a. í leiknum en lét slíka smámuni ekkert stoppa sig.



.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



