Laugardaginn 06. mars kl. 20.07

Minni og færri skjálftar en í gær

Minni og færri skjálftar en í gær
Enn skelfur jörð undir Eyjafjallajökli en skjálftarnir eru mun minni og færri en fyrstu tvo daga skjálftahrinunnar fyrir helgina og nokkru minni en í gær. Að sögn Matthews Roberts, jarðeðlisfræðings á Veðurstofu Íslands, mælast skjálftar á tveggja til þriggja mínútna fresti og hefur virknin verið nokkuð stöðug í dag.

Skjálftarnir eru á um 10 kílómetra dýpi og hafa ekki færst ofar. Þeir eru litlir og menn finna ekki fyrir þeim. Matthew segir engin merki vera um yfirvofandi eldgos, en stöðug vakt verður áfram um sinn með skjálftavirkninni undir Eyjafjallajökli.
 
www.ruv.is greindi frá.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi