Eyjakonan Katrín Eva Auðunsdóttir sigraði í sínum flokki í fitnesskeppni sem kennd er við leikarann og fylkisstjórann Arnold Schwarzenegger en mótið var haldið um helgina. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingur sigrar sinn flokk í fitnesskeppni af þessri stærðargráðu en Katrín Eva er dóttir Kötu Gísladóttur, sem aftur er dóttir Sjafnar Kolbrúnar Benónýsdóttur, Bobbu og Gísla Sigmarssonar.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Mánudaginn 08. mars kl. 09.24
Eyjakona sigraði í fitnesskeppni Arnolds Schwarzenegger
Eva Katrín Auðunsdóttir fyrst Íslendinga til að vinna í sínum flokki
Á vefnum fitness.is er sagt frá þessum glæsilega árangri Katrínar Evu.
Griðarlegur fjöldi keppenda og flokka er á Arnolds. Keppt er í sex hæðarflokkum í fitness kvenna en Katrín Eva keppti í hæsta flokknum sem í voru sex keppendur.
Kristín Kristjánsdóttir hafnaði í fimmta sæti í sínum flokki eins og áður sagði. Keppt er í þremur flokkum eldri en 35 ára og 17 keppendur voru í flokki Kristínar. Þær hafa því báðar náð stórkostlegum árangri á þessu alþjóðlega móti.
Rétt er að taka fram að fyrstu fimm sætin í hverjum flokki eru verðlaunasæti. Þær koma því báðar heim hlaðnar glæsilegum styttum og verðlaunum.
Eins og við sögðum frá hér í gær á fitness.is, keppti Magnús Bess, unnusti Katrínar Evu í yfir 100 kg flokki í vaxtarrækt í gær. Hann komst ekki áfram í fimm manna úrslit í sínum flokki, enda var flokkurinn gríðarlega sterkur og engir aukvistar sem hann keppti við.




.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



