Nú þegar aðeins fimm umferðir eru eftir í Íslandsmótinu í 1. deild karla í handbolta eru línur farnar að skýrast nokkuð. Selfoss og Afturelding hafa verið í sérflokki í vetur og berjast nú um efsta sæti deildarinnar, sem gefur sjálfkrafa rétt á úrvalsdeildarsæti næsta vetur. Liðin sem enda í 2., 3. og 4. sæti fara hins vegar í umspil um eitt sæti í úrvalsdeild ásamt því úrvalsdeildarliði sem endar í næst neðsta sæti í úrvalsdeildinni í ár. Eins og stendur er ÍBV í þriðja sæti deildarinnar en með sigri í næsta leik, gæti ÍBV stigið mikilvægt skreft í að tryggja sér umspilssæti. Umspilið fer svo fram í lok apríl og byrjun maí.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Þriðjudaginn 09. mars kl. 09.00
Karlahandbolti:
Leikið um sæti í úrvalsdeild í lok apríl og byrjun maí
ÍBV stefnir hraðbyri í umspilskeppnina
Eyjamenn leika þá á útivelli gegn ÍR en af þeim fimm leikjum sem ÍBV á eftir, eru þrír á útivelli. Leikurinn verður án efa afar erfiður enda ÍR-ingar aðeins stigi á eftir ÍBV. Þá eru Víkingar aðeins stigi á eftir ÍR en ÍBV og Víkingur leika í síðustu umferðinni í Vestmannaeyjum.
Ef allt fer eftir bókinni þá mun ÍBV leika í umspili gegn liðinu sem endar í öðru sæti, annað hvort Aftureldingu eða Selfoss. Vinna þarf tvo leiki í umspilinu, bæði í undanúrslitum og úrslitum en leikið er á eftirfarandi dögum:
Undanúrslit:
Föstudagur 23. apríl – kl.19.30
Sunnudagur 25. apríl – kl.16.00
Þriðjudagur 27. apríl - kl.19.30 (Ef með þarf)
Úrslit:
Laugardagur 1. maí – kl.16.30
Mánudagur 03. maí – kl.19.30
Miðvikudagur 5. maí – kl.19.30 (Ef með þarf)

.jpg&newxsize=232&newysize=232&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)


.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



