Þriðjudaginn 09. mars kl. 18.36
Myndasafn fylgir fréttinni:

Loðna komin í búrin á Fiskasafninu

Loðna komin í búrin á Fiskasafninu
Loðna komin í búrin á FiskasafninuLoðna komin í búrin á FiskasafninuLoðna komin í búrin á FiskasafninuLoðna komin í búrin á FiskasafninuLoðna komin í búrin á Fiskasafninu
Myndir: Óskar Pétur Friðriksson.
 Skipverjar á Sighvati Bjarnasyni VE komu færandi hendi á Fiskasafnið á dögunum en gjöfin voru mörg kíló af lifandi loðnu.  Loðnan virðist braggast ágætlega í tveimur búrum í safninu.  Svo vel líkar henni lífið í Fiskasafninu að hún er farin að sinna kalli náttúrunnar, þ.e.a.s. loðnan er farin að fjölga sér í búrunum.  Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem fylgst er með hrygningu loðnunnar því sérstakt verkefni um hrygningu loðnunnar var unnin á safninu fyrir nokkrum árum.

Óskar Pétur Friðriksson leit við á safninu og smellti af.  Til að sjá myndirnar, smelltu hér.

Athugasemdir

Fara á VeftívíNýjustu myndböndin
Þjóðhátíð 2010 - tjöldun
Vígsla Landeyjahafnar
Jómfrúarferð Herjólfs í Landeyjahöfn
Elliði Vignisson, oddviti Sjálfstæðismanna
Skoða myndasöfnAf handahófi úr myndasafni
dv rúv vísir mbl Norðureyjafréttir
Myndavél á Hellisheiði
Hellisheiði Færð á Suðurlandi