Bæjarráð hefur lagt það til við Vegagerðina að fallið verði frá núverandi fyrirkomulagi afsláttarkjara fargjalda í Herjólf og tekið upp svipað kerfi og notað er í Hvalfjarðargöngin. Þannig myndu stórnotendur eiga kost á því að kaupa 10-, 40- og 100-ferða kort með stigauknum afslætti. 10-ferða afsláttakort myndi þannig kosta 5800 kr. og hver ferð því 580 kr. með 36% afslætti. 40-ferða kort myndi kosta 15.520 og hver ferð því 388 og afslátturinn 57% og 100-ferða kort myndi kosta 25.900 eða 259 kr. fyrir ferð með 71% afslætti. Miðað er við að afsláttarkjörin gildi um öll fargjöld og bíla.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Þriðjudaginn 09. mars kl. 18.44
Bæjarráð Vestmannaeyja:
Vilja svipuð afsláttarkjör og eru í Hvalfjarðargöng
Áætlaður kostnaður heimila í Vestmannaeyjum vegna samgangna milli 300-400 milljónir á ári
Vestmannaeyjabær áætlar að heildar kostnaður heimila í Vestmannaeyjum vegna samgangna milli lands og Eyja geti hæglega verið milli þrjú hundurð og fjögur hundruð milljónir á ári. Þannig gæti hver fjögurra manna fjölskylda verið að greiða rúmar 300 þúsundir á ári í samgöngur. Það liggur því í hlutarins eðli að afar brýnt er að allra leiða verði leitað til að beina auknum afslætti til heimamanna og annarra stórnotenda. Vilji Vestmannaeyjabæjar er því að afsláttur verði aukinn og honum beint sérstaklega að stórnotendum.
Einbeittur vilji Vestmannaeyjabæjar er að afsláttarfargjöld í Herjólf verði samræmd við þau afsláttarfargjöld sem veitt eru í Hvalfjarðargöngin.
Gjaldskrá Spalar fyrir Hvalfjarðargöng 1. febrúar 2010:





.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)
.jpg&newxsize=140&newysize=93&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)



