Loðnuvertíðinni er að ljúka og eru um 35 þúsund tonn komin á land í Eyjum sem var hlutur Eyjamanna í kvótanum sem var í heild 150 þúsund tonn. Áhersla var lögð á hrognavinnslu og náðust rúm 3200 tonn af hrognum. Megináhersla var lögð á að ná sem mestum verðmætum úr takmörkuðum heimildum og áhersla lögð á hrognavinnslu. Verð á mjöli og lýsi er hátt þannig að sá hluti vinnslunnar skilar líka sínu og menn almennt ánægðir með vertíðina.
Fréttir
Leitarvél
Um Eyjasýn
Athyglisverðir vefir
Miðvikudaginn 10. mars kl. 17.51
Menn almennt ánægðir með loðnuvertíðina sem er að ljúka:
Aflinn í Eyjum 35 þúsund tonn
- Áhersla var lögð á hrognavinnslu - Framleiðslan hér rúm 3200 tonn
„Við eigum eftir 1000 tonn og klárum það í dag eða á morgun,“ sagði Eyþór Harðarson, útgerðar stjóri Ísfélagins. Við erum með 22.600 tonn og það hefur mestallt farið í hrognatöku. Rúmlega 2000 tonn voru fryst á Guðmundi fyrir Rússlandsmarkað. Allur annar afli fór í hrognavinnslu sem þýðir yfir 2000 tonn af afurðum.“
Ísfélagið var með fjögur skip við veiðarnar, Guðmund, Þorstein, Álsey og Júpiter. „Við erum mjög ánægðir með hvernig spilaðist úr þessu. Það var gott að ná þessu á þeim tíma þegar mestu verðmætin nást úr aflanum. Annaðhvort heppn ast þetta eða ekki. Nú taka bolfisk veiðar við hjá Þorsteini og Suðurey og hinir bíða eftir norsk- íslensku síldinni og makríl, eitthvað fram yfir sjómannadag,“ sagði útgerðarstjóri Ísfélagsins.
Páll Scheving, verksmiðjustjóri FES, sagði að búið væri að taka á móti 26 þúsund tonnum til bræðslu á þessu ári og þar af 16.500 tonnum af loðnu. Við fengum einn farm af færeysku skipi og vonumst eftir öðru og erum að landa upp úr Guðmundi núna,“ sagði Páll þegar talað var við hann á miðvikudag. „Við framleiðum hágæðamjöl og verð á mjöli og lýsi er hátt og meiri líkur en meiri á því að verð á mjöli haldist hátt. Við erum sáttir því vertíðin gekk mjög vel,“ sagði Páll.
Vinnslustöðin var með Sighvat, Kap og Ísleif við veiðarnar. Fengu skipin 11.250 tonn af loðnu og fór hún öll í hrognavinnslu. „Við fryst um ekki loðnu á þessari vertíð og náðum að vinna allt í hrogn, rúmlega 1200 tonn og nýtingin þar með hámörkuð. Fyrsta löndun hjá okkar var 22. febrúar og sú síðasta 8. mars. Þrjú skip voru við veiðar og Kap II var einu sinni notuð sem lutningaskip með afla,“ sagði Guðni Ingvar Guðnason, útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar.
Vinnsluskipið Huginn VE var með 2000 tonna kvóta og var hluti aflans unninn í hrogn. „Það gekk bara vel og við erum ánægðir sagði Páll Þór Guðmundsson, útgerðarstjóri.
Vikublaðið Fréttir greindi frá.

.jpg&newxsize=232&newysize=232&fileout=&maxsize=0&bgred=0&bggreen=0&bgblue=0%27)







